28.9.2008 | 13:16
Viku símenntunar lýkur í dag
Skipulag viku símenntunar tókst vel um allt land, en það voru 11 símenntunarmiðstöðvar um allt land sem sáu um framkvæmd vikunnar í ár. Fjöldinn allur af námskeiðum og kynningum fór fram á hverjum stað auk þess sem fyrirtæki voru sérstaklega hvött til að huga að fræðslustefnu sinni og símenntun starfsmanna. Vika símenntunar minnir okkur á að menntun er æviverk og alltaf er hægt að bæta við sig þekkingu sem gagnast í lífi og starfi. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir árlegri Viku símenntunar auk þess sem Starfsmenntaráð styrkir einnig framkvæmd hennar.
Meginflokkur: Menntun og skóli | Aukaflokkar: Dægurmál, Lífstíll, Menning og listir | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.