Færsluflokkur: Lífstíll
28.9.2008 | 13:16
Viku símenntunar lýkur í dag
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2008 | 17:58
Símenntunardagur í fyrirtækjum er í dag
![Logo_blom_vika_sim Logo_blom_vika_sim](/tn/200/users/e2/para/img/logo_blom_vika_sim_681246.jpg)
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2008 | 23:42
Vika símenntunar á fullri ferð á Vesturlandi
StarfsfólkSímenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi verður á fullri ferð um landshlutann íViku símenntunar, í fyrirtækjum og með opnar kynningar til að kynnahina ýmsu námsmöguleika og hvað stendur íbúum til boða á sviði sí- ogendurmenntunar. Í kjölfar auglýstra kvöldkynninga slást Beggi ogPacas í för og verða með vangaveltur um kærleikann, fordóma, gleðina oghamingjuna. Þessarkynningar verða haldnar á Akranesi, Borgarnesi, Grundarfirði og Búðardal.
Þrírkynningarfundir verða haldnir í Viku símenntunar þar sem fyrirhugað er að faraaf stað með Grunnmenntaskólann og Aftur í nám. Kynningarfundirá Grunnmenntaskólanum verða haldnir í Borgarnesi og á Akranesi, auk þess semkynningarfundur á Aftur í nám verður í Grundarfirði.
Jóhanna Kristjónsdóttir verður með fyrirlestur áAkranesi sem nefnist Miðausturlönd menning, trú og saga.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2008 | 23:38
Gagnlegur fyrirlestrar fyrir starfsfólk fyrirtækja á Suðurnesjum
Á Suðurnesjum verða margs konar fyrirlestrar í boði fyrir starfsfólk fyrirtækja. Starfsemi Miðstöðvar símenntunar áSuðurnesjum mun einnig verða kynnt, þ.e. námskeiðahald og náms- ogstarfsráðgjöf auk þess sem sérstök áhersla verður á að kynna lesblindugreiningar og þau námskeiðsem eru sérstaklega í boði fyrir lesblinda.
Dæmi um þá fyrirlestra sem verða í boði er Samskiptiog vellíðan á vinnustað, en þar fjalla Þórhildur Þórhallsdóttir um mikilvægistarfsánægju á vinnustöðum og hvaða þættir hafa helst áhrif á starfsánægjueinstaklinga. Jón Gnarr mun halda fyrirlestur um þjónustu undir heitinu Ég viðskiptaVINURINN, sem er bráðfyndin, djúpog hressandi sýn á þjónustu frá einum kraftmesta listamanni þjóðarinnar. KolbrúnRagnarsdóttir mun síðan fjalla um mismunandi aðferðir til að stjórna streitu ogmæta álagi í starfi. Ætlunin er aðbjóða upp á 10 fyrirlestra sem yrðu fyrirtækjum á svæðinu að kostnaðarlausu.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2008 | 21:58
Vika símenntunar gerir víðreist á Norðurlandi vestra
Farskólinn miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra mun heimsækja fyrirtæki og stofnanir á Siglufirði, Blönduósi, Hvammstanga og Skagaströnd.Með í för verða fulltrúar frá Hólaskóla og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra auk fulltrúa verkalýðsfélaga á svæðinu.
Á Blönduósi og Skagaströnd verður lögð áhersla á að kynna verkefnið Eflum byggð en það er verkefni sem unnið er í samstarfi við Hólaskóla, háskólann á Hólum og Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Einnig verður kynnt námskeiðið Aftur í nám, en það er ætlað fullorðnu fólki sem á við lestrar- og skriftarörðugleika að stríða. Á Hvammstanga verður Grunnmenntaskólinn kynntir og einnig tungumálanámskeið sem eru í boði, en á Siglufirði verður megináherslan á almenna kynningu á Farskólanum.
Í Skagafirði verður megináherslan lögð á Hofsós, en þar verður kynning á Grunnmenntaskólanum með fulltingi kvenna sem hyggjast stunda nám í honum í vetur. Á Sauðárkróki verður opið hús í Farskólanum þar sem verða kynnt starfstengd námskeið sem Farskólinn hefur haft umsjón með fyrir opinberar stofnanir á svæðinu.Á öllum þessum stöðum verður jafnframt boðið upp á ókeypis áhugasviðsgreiningu á vegum Svæðisvinnumiðlunar á Norðurlandi vestra.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2008 | 21:45
Námskeið og kynningar í Eyjum
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2008 | 14:09
Ný námsver Þekkingarnets Austurlands kynnt í viku símenntunar
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.9.2008 | 22:40
Er þörf fyrir aukna þekkingu í þjónustugreinum?
Mímir símenntun boðar til hádegisfundar þriðjudaginn 23. sept. kl. 12.15-14.00 í Skeifunni 8 í tilefni af viku símenntunar. Á fundinum verður velt upp spurningunni hvort þörf sé fyrir fræðslu í verslunargeiranum og hver vegna tækifærin sem eru til staðar eru ekki nýtt sem skyldi.
Frummælendur:
- Helga Björk Pálsdóttir verkefnastjóri Verslunarfagnáms hjá Mími-símenntun
- Sigríður Anna Guðjónsdóttir verkefnastjóri hjá Samtökum verslunar- og þjónustu
- Guðríður H. Baldursdóttir Starfsmannastjóri Kaupáss
- Guðfinna Harðardóttir - sérfræðingur hjá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Fyrirkomulag - Fjórar stuttar framsögur og hópavinna í 30 mínútur. Stýring hópavinnu: Björn Garðarsson starfsmaður fagráðs Verslunar- og þjónustu og Haukur Harðarson verkefnastjóri hjá Mími-símenntun.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á: haukur@mimir.is
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.9.2008 | 09:32
Fyrirtækjadagurinn er 24. september
Miðvikudagurinn 24. september er tileinkaður fræðslu í fyrirtækjum. Þann dag geta fyrirtæki og stofnanir nýtt til að kynna fræðslustefnu sína fyrir starfsmönnum, hleypt af stað símenntunarátaki eða haldið námskeið. Það er líka góð hugmynd að fá fræðsluaðila til að kynna framboð námskeiða eða fulltrúa stéttarfélaga eða fræðslusjóða til að kynna réttindi sem starfsmenn hafa t.d. til að fá námskeið greitt úr sínum sjóðum. Bent er á framkvæmdaraðila viku símenntunar í tenglalista hér til vinstri en þeir koma gjarna og kynna viku símenntunar og námsframboð á hverju landssvæði.
Heilmörg fyrirtæki hafa tekið virkan þátt í viku símenntunar undanfarin ár og hafa gjarna nýtt fyrirtækjadaginn til að hvetja starfsmenn sína til að leita sér fræðslu. Fyrirtæki eru hvött til að láta vita um það sem þau gera í tengslum við viku símenntunar. Upplýsingar má senda til verkefnastjóra í simenntun@simnet.is
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2008 | 23:01
Vika símenntunar 2008
Lífstíll | Breytt 15.9.2008 kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)