Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
Mímir símenntun stendur fyrir morgunfundi miðvikudaginn 24. september kl. 08.30 til 10.15 í Skeifunni 8, 2.hæð. Tilefnið er fyrirtækjadagur viku símenntunar.
Spurningunum sem velt verður upp eru: Hver er hagnaður fyrirtækis af því að starfsmenn með stutta formlega skólagöngu sæki sér þekkingu? Kunna þeir ekki allt sem starfið krefst?Verður námið ekki til þess að þeir gera auknar kröfur, sækja frekara nám eða finna sér aðra vinnu? Er símenntun aðeins fyrir starfsmenn með framhaldsnám?
Frummælendur:
- Jón Sigurðsson sérfræðingur, Viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík.
- Pálmar Sigurðsson skrifstofu- og starfsmannastjóri Hópbíla
- Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi hjá Mími-símenntun
- Andrés Magnússon starfsmannastjóri Póstsins
Aðalheiður Jónsdóttir verkefnastjóri viku símenntunar stýrir pallborðsumræðum
Skráning á haukur@mimir.is
Að fundinum loknum gefst gestum kostur á að kynna sér starfsemi Mímis-símenntunar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2008 | 14:35
Samstarf út um sveitir í Eyjafirði
15.9.2008 | 21:49
Samstarfsaðilar viku símenntunar um land allt
Framkvæmdaraðilar viku símenntunar eru símenntunarmiðstöðvarnar níu um landið og Mímir símenntun og Framvegis á höfuðborgarsvæðinu. Í viku símenntunar er lögð áhersla á að kynna þá símenntun sem í boði er, fyrirtæki verða heimsótt og boðið upp á stutt námskeið og ráðgjöf til kynningar.
Símenntunarmiðstöðvarnar á landsbyggðinni eru:
- Símenntunarmiðstöð Vesturlands
- Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum
- Fræðslunet Vestfjarða
- Þekkingarnet Austurlands
- Fræðslunet Suðurlands
- Símey - símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar
- Farskólinn, miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra
- Viska, fræðslu- og símenntunarmiðstöð Vestmannaeyja
- Þekkingarsetur Þingeyinga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.8.2008 | 23:01
Vika símenntunar 2008
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.9.2008 kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)